13 September 2008

nýsjálfranskt-íslenskt kvöld


4 geðsjúklingar komu saman frá 2 þjóðlöndum, og borðuðu mat frá 3. þjóðlandinu. Ein festist ekki á filmu svo engar heimildir eru fyrir þátttöku hennar í franska kvöldinu og því mun hún að öllum líkindum fá að kaupa tryggingu fyrir geðsjúkdómum.
Fordrykkir, franskar pönnukökur, rauðvín, ostar og "bráðum" heimsfræga rifsberjahlaupið enduðu í þörmum okkar stallsystra og jafvel á börmum og mjöðmum ef til lengri tíma er litið.
Laglegi lögreglumaðurinn á efri hæðinni kom því miður ekki niður og handtók okkur eins og plön voru uppi um, þrátt fyrir ítarlegar tilraunir til óspekkta. Merkilegt hvað vel vaxnir menn í einkennisbúningum geta gert fyrir miðaldra þreyttar húsmæður. Ef mig minnir rétt þá bjuggum við til marengsbrjóst með rjóma og kirsuberjum og settum fyrir framan hurðina hjá honum í nótt. Með ástarkveðjum.......
What a night!!

11 comments:

Anonymous said...

Vá...þrjár sexy og seiðandi skvísur........argggggg.......hefði alveg verið til í að koma og handtaka ykkur allar :))))

Kolbrun DeLux said...

En þú ert ekki lögga??!!!!!!

Anonymous said...

heheheheheheheheheh......það er aldrei að vita hvað ég er og hver ég er :))) Hefði verið mest spenntur fyrir að handtaka eina þarna á myndinni og kenni henni allt um lög og reglur heheheheheheheheh

Kolbrun DeLux said...

Ég geri fastlega ráð fyrir að þú sért að tala um hana Kathy, nýsjálenska fljóðið?!, en hún er því miður farin af landi brott. Töff lökk.

Anonymous said...

Sorry sweetie....nei, hún er ekki sú sem er spennandi á myndinni þannig að þú mátt geta betur. Argggggggggggggg...............holy molí.....Er bara hrifinn af íslensku lambakjöti en ekki grófu nýsjálensku lambakjöti. No way...veljum íslenskt er mitt mottó :)

Kolbrun DeLux said...

*Dæs* nenni eiginlega ekki þessum tölvu-gátuleikjum. Þú þarft bráðum að sýna þitt rétta andlit, því þetta er að verða þreytt.

Anonymous said...

Ég tek mér þá lengri hvíld núna og gef þér tækifæri á að anda án þess að vera að hugsa um froskinn litla :) Góðar stundir

Kolbrun DeLux said...

Þú er nú voða huglaus!!

Anonymous said...

Þú segðir annað ef þú vissir hver ég er og hvernig þú þekkir mig.....Þú yrðir svo kjaftstopp að það væri í raun myndamóment aldarinnar að sjá andlitið þitt þá :) en ég veit að þú getur ekki höndlað mig allan. Ég og minn huglausi rass ætlum því að hafa þetta sem síðustu færsluna okkar hér. Njóttu lífsins og vonandi finnur þú draumaprinsinn þinn. Þú átt það svo skilið!!!

Kolbrun DeLux said...

Jáhá, þú gerir mig algjörlega orðlausa. To hot to handle?! Verðum við ekki að vona að prince charming dúkki upp þegar minnst varir. Óska þér líka velfarnaðar benni froskur. Mun líklega ekki fá að vita hver þú ert.

Anonymous said...

Afhverju skorarðu ekki á Benna frosk að vera smá "fer" og gefa þér svona einsog eina tvær vísbendingar eða gátur um hver hann - :)

Nema hann sé einhver sem þú ert búin að hafna áður!!!! - Ummm Kolla!!! - Eða hann sé kona???? - Er viss um að það sé einhver önnur ástæða en hugleysi að hann sýnir sig ekki???

Dillan