20 November 2009

Og ég ber ríkidæmið með mér...


Ég uppgötvaði eitt í dag. Var að lesa þessa hræðilegilegu frétt á mbl.is
og það er ljótt að segja það en ég gladdist smá í hjartanu.
Ég er gullnáma!
Ég lúri á gulli, sit á gulli og ber ríkidæmi með mér. Halló..... 15.000 dollarar fyrir 1 lítra af fituvef....hó hó hó..... Þó fitusog sé ekki alveg gefins, þarf nú ekki að sjúga marga dropa til að hafa uppí kostnaðinn. Ég er greinilega miklu efnameiri en ég hafði gert mér grein fyrir. Ætla að hafa þetta í bakhöndinni ef harnar mikið í ári.


Ég vona bara að Steingrímur fatti þetta ekki og leggi stóreignaskatt á bústnar og búsældarlegar miðaldra konur.

3 comments:

Danska drottningin á Akureyri said...

Ég ætla að fara í mál við líkamsræktarstöðina mína og krefjast bóta vegna tapaðrar fitu. Býð þér í slátur með hamsatólg og súkkulaðibúðing þegar bæturnar berast.

aha said...

við hljótum að geta notað þetta sem veð, öruggara en húseign ;)

Kolbrun DeLux said...

Danska Drottning: Ég hlakka til að fá slátur með hamsatólg og súkkulaðibúðing hjá þér. Spurning hvort ég fái að halla mér hjá þér eftir þessa orkumiklu máltíð?

Aha: mér hefur einmitt líka fundist þessi aukakíló vera mjög örugg. Þau eru ekkert að rýrna eða fara neitt. Flott veð!