16 October 2008

Loksins þegar iðnaður blómstrar á Íslandi og gæti hugsanlega verið okkar einasta ljós í efnahagsmyrkrinu ræðst lögreglan til athlögu og upprætir björtustu von í útflutningi landsins! Þessi verksmiðja hefði líklega getað bjargað þjóðarbúinu og skapað miklar gjaldeyristekjur. Ég varð hálf skúffuð þegar ég vissi um hvað blaðamannafundurinn fjallaði. Ég hafði gert mér í hugarlund að það væri dáldið af blóði, líkum og geðsjúklingum sem gengju lausir. Langaði í krassandi sögu, en líklega verð ég bara að fara í Mál og Menningu til að ná mér í alvöru glæp.


Hér hefur karlmaður látið í sér heyra í kommentakerfinu og vill gjarnan deila Topp 10 lista sínum yfir bjána-konur sem hann hefur hitt í gegnum lífið og ég hef tekið að mér að birta þennan lista, þegar mér hefur borist hann í hendur. Mér leikur forvitni á að vita hvort minn og hans listi séu eitthvað líkir. Vona að hann standi við gefin loforð um að senda mér Toppinn, en annars verður hann komin á bjánalistann minn.

Svona til að rétta aðeins úr eldamennskukútnum, þá eldaði ég dýryndis fisk í kvölmatinn. Birti hér myndir af fallega fiskréttinum mínum og ljóta kúknum á pönnunni. Þetta er alltaf bara í ökla eða eyra.



5 comments:

Anonymous said...

ljómandi fínn sá neðri. hinn síðri;)

(svona af sjónarhóli augans)

Kolbrun DeLux said...

Já, það var vel hægt að kjamsa á fiskréttinum ;o)

Anonymous said...

Þessi karlmaður stendur við sitt og fer vonandi ekki á fíflalistann þinn Kolla :))) Tékkaðu á mailinu þínu núna.........hehehehehe

Kolbrun DeLux said...

Vááá... þessi listi er ekki skárri en minn. Eru konur svona slæmar??
Mun birta listann í kvöld ;o) þetta er athyglisverð lesning...voðalegar bjánakonur hefur þú verið að hitta.

Anonymous said...

Já...einn auðmjúkur og sorgmæddur í framan núna. Þetta er nú reyndar ekki þverskurður islenskra kvenna, þær eru nú margar yndislegar. Það eru þó til svona bjánafrík inn á milli.........en ég er búinn að stilla radarinn minn og tjúna hann inn á yndislega hluta ykkar. Kannski verður listinn betri næst :))) Spurning að bjóða þér á date og sjá hvort að þú verðir ekki á toppnum á nýja jákvæða listanum :) HEHEHEH