20 October 2008

Topp tíu listi karlmannsins

Sjálfboðaliðinn sendi mér Topp 10 listann sinn yfir bjánakonur sem hann hefur deitað og danglast með. Ég held hann sé verri en minn, svei mér þá, eða allavega ekki betri. Konur eru líklega líka bjánar.
Verði ykkur að góðu!

10. Konan, sem ætlaði að gera afmælisdaginn minn ógleymanlegan á mjög persónulegan hátt, gerði það....með því að fara í fílu út af fyrrverandi manni sínum og kvöldið varð ónýtt!

9. Konan ætlaði að eiga rómantískasta kvöld ever, hljóp út frá því, þar hún fékk samviskubit yfir því að líða svo vel hjá mér!

8. Konan kom sérstaklega í bæinn að norðan til að hitta mig og hringdi og sagðist vera á leiðinni en gleymdi greinilega að beygja á réttum stað því hún endaði fyrir norðan í lokin án þess að koma í heimsókn!

7. Konan bauð mér að vera hjá sér yfir nótt en sparkaði mér úr rúminu kl. tvö um nóttina og sagðist þurfa að fara að sofa og vildi sofa í friði!

6. Konan lýsti sér sem þvílíkri dís en þegar hún opnaði hurðina þá var Gilitrutt fegurðardrotting aldarinnar í samanburði við hana!

5. Konan bauð mér í sturtu með sér en sturtuklefinn var svo lítill að hún komst bara fyrir og ég beið fyrir utan kaldur og rómantíkin fór svooooooooooniður fyrir frostmark!

4. Konan var búin að hugsa svo mikið um draumastefnumótið sitt sem hún margröflaði um, að hún hafði gleymt að fara í bað eftir að “Rósa frænka” var í heimsókn!

3. Konan lýsti því yfir að hún væri meistarakokkur en samt tókst henni að brenna einfaldan mat og afsakaði sig með því að vera ekki í stuði til að elda!

2. Konan var búinn að tala mikið um að hittast á góðum veitingastað og eiga rómó stund saman en fatasmekkur hennar var svo lélegur að ég fílaði mig eins og að sitja með róna sem var í stigapoka skóflandi í sig matnum eins og jarðýta………maður missti hratt matarlystina við þetta!

1. Konan, bauð mér heim í rómó kaffi og "eitthvað með því" en var svo að strauja á fullu á meðan sem var algjör rómó killer og turnoff fyrir mittítalska blóð!


Ha...ha..ha...ha... gott að ég er ekki ein um að vera í lúðadeildinni. Takk fyrir þetta "lúðadeildarspilari".

21 comments:

Anonymous said...

"Ánægjan" var öll mín að senda þér þetta :))) Kannski ættum við tvö að stofna svona elítudeild hinna flottu og mikilfenglegu heheheheh

Anonymous said...

Jahérna hér...nú hef ég deitað ja nokkrum sinnum um ævina, en kannast bara ekkert við þennan topp tíu lista, mér finnst ég samt ekkert hafa verið í lúðadeildinni, ég þarf að fara að gera upp við mig í hvaða deildum ég hef verið í....hmmmmm kveðja, Pálína.

Kolbrun DeLux said...

já, í hvaða deild hefur þú verið Pálína? Á ég að trúa þessu?

Anonymous said...

Ég er í eðaldeildinni :)))))

Anonymous said...

Ég held ég hafi verið í ja...ég vil ekki segja óheppnu deildinni, heldur kannski tvístígandi deildinni, og stundum var það mótherjinn sem var tvístígandi eða ég sjálf. En eftir allar þessar viðureignir ætti ég nú að vera reynslubolti mikill,og nenni ekki að eyða tíma í deit...deita bara sjálfa mig, sem er bara nokkuð gaman (oftast)

Anonymous said...

heheheheh...tvístígandi deild...allt er nú til :) Spurning að stofna félagsskap þeirra sem hafa lent í óheppnudeildinni...kannski er þetta bara spurning að deita sjálfan sig..?? Nahhhh...er meira fyrir að gefa af mér í návist annarrar manneskju. Jafnvel spurning að gerast munkur...heheheheh. Kannski bara snilld að vera munkur í þessu árferði :))))

Kolbrun DeLux said...

Það hefur líklega komið fram verri hugmynd en að gerast munkur.

Sjálfsdeit eru ágæt svona þegar er stemming fyrir því en voðalega einmannaleg stundum.

Spurning um að setja upp mót með nokkrum deildum. Skráning er þegar hafin!

Anonymous said...

auðvitað geta konur verið algjörar beljur. er það eitthvað nýtt?

áhugaverður listi annars..

Anonymous said...

Mmmmmmmmmmm.........date við sjálfan sig er alltaf leiðinlegt og óspennandi en ég verð með eitt svoleiðis á laugardagskvöldið, einn með fullt af kertum, ostum, tónlist og hvítvín.....það væri nú betra að hafa eitt eintak af æðra kyninu með þarna :))) Sem betur fer er þessar konur á listanum frávikin frá þessu enda ekki neinn mælikvarði á þverskurð kvennþjóðarinnar. Þið eruð mun yndislegri en þetta!!!

Anonymous said...

Alls ekki sammála, mér finnst ekkert óspennandi og leiðinlegt að deita sjálfa mig....með ostum og kertum og þá góða bók eða tónlist, en get verið sammála Kollu að stundum getur það verið einmanalegt, en þá er bara að fara á eitthvert óspennandi deit við einhvern í lúðadeildinni...og þá er aftur farið að vera gaman að vera einn...að deita sjálfan sig... hehehe kv.Pálína

Anonymous said...

hehehehehe.......yuck...lúðadeildin.....ég held að ég verði þá bara einn að deita sjálfan míg á laugardagkvöldið með gott hvítvín, osta, bók og tónlist. Er að lesa ansi spennandi bók hvort sem er og væri alveg til í að taka gott kvöld í hana og klára bókina. Spurning að bjóða þér á date Pálina? Þá get ég loksins stofnað þessa eðaldeild kvenna :))))))) hehehehehehehe

Kolbrun DeLux said...

Pálína, you've got a date! ;o) Mér heyrist það allavega. Segið svo að það gerist aldrei neitt....

Anonymous said...

Góður hlutir gerast :))))))))

Anonymous said...

Nohh...já date boðin koma úr óvæntustu áttum:) Og allt að gerast ! En ég gæti tekið lið 8 úr bjánadeildinni, eða bætt við nýjum lið...komst aldrei af stað en lofaði öllu fögru....P

Anonymous said...

heheheheheh...gott útspil :) en núna sárnaði litla hjartanu mínu tár tár tár. Ég verð bara að horfa á þriggja klúta mynd á einkadeiti mínu annað kvöld og gráta með mínu blæðandi hjarta með klínex kassann hjá mér og sötra á góðu hvítvíni í svaka rómó fíling. Ég gæti líka bætt við einum lið í viðbót um bjánakonurnar. Sýndi mikinn áhuga en kom sér ekki að verki eða sýndi áhuga í orð en ekki verki...

Anonymous said...

Ahaha......hver sýndi áhuga í orði en ekki verki? mín ekki að fatta enda ljóshærð með eindæmum... er einhver misskilningur í gangi ? getum bætt við einni deild, misskilningadeildinni ......úha

Kolbrun DeLux said...

Ég ætla ekki að blanda mér í þessa umræðu, en fylgist spennt með. Þetta er nokkuð áhugavert ;o)

Anonymous said...

ahhhhh....er maður minna orða :))))
Er vanur skörpum ljóshærðum konum enda á ég eina svoleiðis....sem er litla augnayndið mitt, prinsessan eina og sanna. hehehehe...misskilningadeildin hehehehe...er frekar meira fyrir að stofna eðaldeilina þar sem þú værir á toppnum þar :) Ég verð bara spakur á solodeitinu núna og fylgist með framvindunni líka í kvöld :))))

Anonymous said...

Kvöldið leið hjá öllum, hvort sem þeir voru á sjálfsdeiti eða öðru deiti:) Kolla mín, ég ætla nú ekki að misnota síðuna þína í daður við ókunnuga menn....dáldið skemmtilegt samt svona í skammdeginu:) þú vísar þessum ókunnuga leiðina ef þarf:)) kv.P

Anonymous said...

...Kolla getur vísað á leiðina til mín og ég syng á sama tíma "Leiddu mína litlu hendi..:" :))) heheheheheh

Anonymous said...

Ég held að Kolla vilji ekki vísa leiðina....hún vill ekki missa mig :))))))