07 December 2008

ég er ekki alveg samviskulaus...

Nú verður sumum hlutum ekki slegið lengur á frest. Mig er farið að langa til að jólaskreyta, en fæ mig ekki til að skreyta yfir þumlungarlag af ryki og skít! Ef við hefðum verið að tala um svona cm dæmi, þá hefði ég ekki áhyggjur af því. Þannig að nú uppúr hádegi mun náttfatasófapartýinu slúttað og ég ætla að reka skít og drullu út úr mínum húsum með mr.Proper sem aðalvopn! Vona að hann nýtist vel í þetta verkefni, stæltur, sterkur, ákveðinn, blíður og jafnvel dáldið ástleitinn.....#$#%#$% hlakka ég til að sjá hann vinna ;o)

1 comment:

Elín Eydís said...

Nú, ef allt annað bregst, þá seturðu bara á þig sólgleraugun áður en þú byjar að skreyta......þá sést rykið og skíturinn ekki eins vel!