15 March 2009


Jæja.. þá hef ég sóað lífi mínu þessa helgina.

Ryk-vefirnir eru á bak og burt og húsið ilmar af klósetthreinsiefnum!

Fötin í kommóðunni minni og fataskápnum hans Dofra eru ekki lengur eins og þau hafi verið í þeytivindu eða hrærivél heldur brotin fallega saman.

Eins og þráhyggjusjúklingur hafi farið hamförum á heimilinu.

Til að fullkoman þetta frábæra ævintýri fór ég í dag og keypti blettaeyði frá Helvíti og mýkingarefni frá Djöflinum. Ég sé ekki fram á að ég geti með nokkru móti hætt þessu þrifæði..... Er einhver sem getur bjargað mér frá þessu böli?

3 comments:

Anonymous said...
This comment has been removed by a blog administrator.
Elísabet said...

það er aðeins hægt að hjálpa þeim sem vilja láta hjálpa sér. mundu það:)

Elín Eydís said...

Ooooo, mig vantar svona þráhyggjusjúkling á heimilið. Verst að ósýnilegi leigjandinn er ekki svona illa haldinn af þrifæði!!! Hann skellti sér bara heim til mömmu í nokkra daga (geri ég ráð fyrir, hann var nú ekki svo tillitssamur að láta mig vita)þannig ég tók heimilið í gegn í gær í fjarveru hans..........og þér til samlætis, greinilega! :-)