Tónó byrjar hjá Dofra í dag og kennarinn hringdi og boðaði hann í tíma kl. 16.
Ég heyri í Dofra og segi honum að muna að fara í tónó klukkan fjögur.
Hann segir "mamma, ég er ekki viss um að ég muni það, viltu ekki minna mig á tímann og hringja í mig þegar ég á að leggja af stað?" Við sannmæltumst um það og ég sagði símanum mínum að minna mig á að minna Dofra á að fara af stað á réttum tíma.
Núna var hann að hringa í mig. "mamma, ég ætlaði bara að minna þig á að minna mig á að fara í tónó á réttum tíma!"
....þessi elska....
P.s. Ég hef ekki trú að að þessi tími gleymist ;o)
08 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Og hvaða hljóðfæri er hann Dofri svo að læra á??
Sætastur!!!!!!!
Dillan
Dofrinn minn er að byrja að læra á gítar. Hann mun geta haldið uppi stuðinu í matarboðum móður sinnar eftir örfá ár!!! tíhí....
Hann er langsætasti maðurinn sem ég þekki í heiminum ;o)
hehe..brilljant, já hann er engum líkur hann Dofri, algjör gimsteinn sem eg hef seð til hans:) panta hann sem tengdason i fyllingu timans:) kveðja, Palina
Post a Comment